Afhendingarskilmálar Emstra tölvuþjónusta ehf
Síðast uppfært: 24. október 2025
Hjá Emstru leggjum við metnað okkar í hraða og örugga afhendingu. Hér fyrir neðan finnur þú allar helstu upplýsingar um sendingarleiðir, afhendingartíma og kostnað.
1. Afgreiðslutími pantana
Að jafnaði eru allar pantanir teknar saman og afgreiddar innan 1-2 virkra daga frá því að pöntun er móttekin. Pantanir sem berast um helgar eða á almennum frídögum eru afgreiddar næsta virka dag á eftir.
Þegar pöntunin þín hefur verið afgreidd og afhent sendingaraðila færðu staðfestingarpóst með rakningarnúmeri (ef við á).
2. Sendingarleiðir og verð innanlands
Við bjóðum upp á eftirfarandi sendingarleiðir innan Íslands í samstarfi við Póstinn og Dropp.
- Sækja í heimilisfang Emstra(frítt)
- Þér er velkomið að sækja pöntunina þína á heimlisfangið okkar Öldugerði 4, 860 Hvolsvöllur þér að kostnaðarlausu.
- Pantanir eru að jafnaði tilbúnar til afhendingar næsta virka dag eftir pöntun. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin er klár.
- Afhendingartími: Alla virka daga milli 16:00 og 21:00. Helgar milli 10:00 og 17:00
3. Frí heimsending
Við bjóðum upp á fría heimsendingu fyrir allar pantanir yfir 10.000,- innan Hvolsvallar. Frí sending bætist sjálfkrafa við í körfunni þegar lágmarksupphæð er náð.
4. Sendingar erlendis
Við sendum ekki vörur erlendis nema í sérstökum tilfellum. Vinsamlegast athugið að viðskiptavinur ber þá ábyrgð á öllum viðeigandi tollum, sköttum eða innflutningsgjöldum sem kunna að leggjast á sendinguna í heimalandi hans. Emstra ber enga ábyrgð á töfum sem kunna að verða í tollafgreiðslu.
5. Ósóttar sendingar
Ef pöntun er ekki sótt á tilsettum tíma er hún send til baka til okkar byrgja. Við áskiljum okkur rétt til að rukka viðskiptavin um þann kostnað sem hlýst af endursendingunni.
6. Skemmd vara í flutningi
Ef vara berst skemmd er mikilvægt að hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er í gegnum tölvupóst á emstra@emstra.is. Vinsamlegast látið myndir af bæði vörunni og umbúðunum fylgja með svo við getum brugðist við á sem skjótastan og skilvirkastan hátt.
Hafðu samband
Ef einhverjar spurningar vakna varðandi afhendingu eða sendingarmáta, ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst á emstra@emstra.is og við svörum eins fljótt og auðið er.
