Frábært fartölvutilboð í nóvember. Dell Pro Plus vél, skjár með innbyggðri dokku og lyklaborð.
Vönduð fartölva úr Pro Plus fyrirtækjalínunni frá Dell. Vélin kemur með 14“ IPS skjá, Intel Ultra 5 235U vPRO örgjörva, 32GB RAM og 512GB geymsluminni, Wi-Fi 7 og baklýstu Íslensku Copilot lyklaborði. 3 ára ábyrgð á vél, disk og rafhlöðu.
skjárinn sem við mælum með sem einnig er á nóvember tilboði er frábær 27″ skjár úr Pro Plus línu Dell. Skjárinn fer vel með augun, ComfortView Plus minnkar bláa ljósið um allt að 35%. 100Hz endurnýjunartíðni gerir myndina skarpari og skjárinn skilar skörpum litum. Innbyggð USB-C dokka og Daisy Chaining.
Dell KM7120 er afskaplega vel hannað þráðlaust lyklaborð með íslenskum stöfum. Fyrirferðalítið með Low profile Chiclet hnöppum og 7 hnappa Dell mús. Hægt að tengja við 3 tæki, BT eða RF.















